Reiknum hraðar

Er reiknað á fingrum? Margföldun erfið?

  • Blogg
  • Skráning
  • Leiðbeiningar
    • Fylgiskjöl
  • Innskráning
    • Síðan mín

Uppfærsla – Útg. 3.1

September 1, 2016 by Kolbeinn Sigurjónsson

Nú er komin út stærsta uppfærsla okkar frá upphafi, útgáfa 3.1. Viðmótið var endurhannað frá grunni og forrið endurforritað algjörlega til að fá meiri stöðugleika og hraða.

Hnappar hafa verið stækkaðir og litagleðin aukin, þægilegra fyrir minni fingur.

samsung1Þegar nemandinn svarar upphátt og flettir spilunum heyrir hann lágan smell eða tón sem hefur mismunandi tónhæð.

Smellurinn er hærri eftir því sem nemandinn reiknar hraðar og dýpkar svo þegar útreikningurinn tekur tíma.

Þetta lítur kannski út fyrir að breyta miklu en tilgangurinn með hljóðinu er að gefa nemandanum merki um það hversu stöðugur og hraður reikningurinn er, án þess að vera truflandi.

Hljóðið virkar á undirvitundina og leitast nemandinn við að reikna á stöðugum hraðar.

Tempo barsMikilvægasta breytingin liggur þó í bættri og breyttri endurgjöf í lok hverrar æfingar.

Við höfum bætt við sérstökum “mæli” sem gefur árangurinn myndrænt til kynna.  Markmiðið er að hafa súlurnar sem jafnastar og minnstar.

Hæð súlunnar gefur til kynna hraðann, og er lægri súla því merki um meiri hraða.
Óregluleg hæð á súlum bendir til þess að nemandinn reiknar á ójöfnum hraða og er því að erfiða með tiltekin dæmi.

placeit (16)

 

Filed Under: Blogg

Sterkasti hlekkurinn

Öflugur hugarreikningur og margföldun getur skipt sköpum í stærðfræðinámi barnsins þíns.

Ef þitt barn er orðið 10 ára, reiknar á fingrum og á erfitt með að læra margföldun, þá er Reiknum hraðar sérsniðið fyrir það.

Simple Social Icons Plugin

  • Email
  • Facebook

Ég heiti Kolbeinn Sigurjónsson og er stofnandi Betra nám.

Ég er með Diploma frá Alþjóðlegu Davis lesblindusamtökunum (DDAI), Diploma í dáleiðslu og Bsc. í tölvunarfræði.

Reiknum hraðar

Þjálfunarnámskeiðið verður til af illri nauðsyn. Þegar ég hafði hitt foreldra nemenda lýsa sama vandanum, ár eftir ár, ákvað ég að gera eitthvað eitthvað í málinu.

Eitthvað sem gerði foreldrum kleift að þjálfa börn sín heima, hvar og hvenær sem er. Þannig varð námskeiðið til og hefur þjónað hlutverki sínu vel og dyggilega undanfarin ár.

Betra nám

Frá árinu 2004 hefur Betra nám verið til staðar fyrir foreldra barna sem glíma við námsörðugleika.

Betra nám hefur unnið fyrir fjölda símenntunar- og fræðslumiðstöðva, s.s Mími símenntun, Hringsjá, Fræðslunet Suðurlands og fékk tilnefningu Fréttablaðsins árið 2006 fyrir framlag til æskulýðsmála.

Örlítið um mig

Ég heiti Kolbeinn Sigurjónsson og er stofnandi Betra nám.

Ég er með Diploma frá Alþjóðlegu Davis lesblindusamtökunum (DDAI), Diploma í dáleiðslu og Bsc. í tölvunarfræði.

- Kolbeinn Sigurjónsson

Copyright © 2025 · Epik on Genesis Framework · WordPress · Log in