Nú er komin út stærsta uppfærsla okkar frá upphafi, útgáfa 3.1. Viðmótið var endurhannað frá grunni og forrið endurforritað algjörlega til að fá meiri stöðugleika og hraða.
Hnappar hafa verið stækkaðir og litagleðin aukin, þægilegra fyrir minni fingur.
Þegar nemandinn svarar upphátt og flettir spilunum heyrir hann lágan smell eða tón sem hefur mismunandi tónhæð.
Smellurinn er hærri eftir því sem nemandinn reiknar hraðar og dýpkar svo þegar útreikningurinn tekur tíma.
Þetta lítur kannski út fyrir að breyta miklu en tilgangurinn með hljóðinu er að gefa nemandanum merki um það hversu stöðugur og hraður reikningurinn er, án þess að vera truflandi.
Hljóðið virkar á undirvitundina og leitast nemandinn við að reikna á stöðugum hraðar.
Mikilvægasta breytingin liggur þó í bættri og breyttri endurgjöf í lok hverrar æfingar.
Við höfum bætt við sérstökum “mæli” sem gefur árangurinn myndrænt til kynna. Markmiðið er að hafa súlurnar sem jafnastar og minnstar.
Hæð súlunnar gefur til kynna hraðann, og er lægri súla því merki um meiri hraða.
Óregluleg hæð á súlum bendir til þess að nemandinn reiknar á ójöfnum hraða og er því að erfiða með tiltekin dæmi.